Þetta er bloggið þeirra Agnesar og Einars pennalata hvar og hvenær sem þau eru.


   



<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed

Blogdrive



Monday, July 20, 2009
Erum flutt

Í tilefni aff komu Völunar Ara ákváðum við að flytja til að geta sett inn fleiri myndir af prinsinum. Nú búum við hér:

http://agnar.123.is/

Lítiði endilega við : )

Posted at 08:33 pm by agnesogeinar
Make a comment

Wednesday, July 08, 2009
Of seint

Það er fínt að fá umfjöllun um siðleysið í aðdraganda hrunsins, en hefði Neytendastofa ekki átt að koma með þessar ábendingar fyrr? Og jafnvel gera eitthvað í málinu? Prédikun in hindsight samræmist varla því hlutverki hennar að vera eftirlitsaðili og gæta "öryggis og réttenda neytenda". Neytendur eru á hausnum og því eðlilegt að álita að Neytendastofa hafi brugðist, alveg eins og siðgæði bankamanna.

Posted at 09:32 am by agnesogeinar
Comments (1)

Friday, July 03, 2009
Nýr kafli

Nú er um 7 mánaða frí framundan - þ.e. frí frá vinnu. Furðuleg tilhugsun! Hvenær var maður síðast í svona löngu fríi frá vinnu og skóla? 5 ára?

Annars er ég búin að vera að hugsa um Icesave. Ég veit ekki alveg hvernig maður á að taka afstöðu til þessa máls þegar:
a) Hvert sérfræði-/lögfræðiálitið á fætur öðru hrekur hið fyrra sem bölvaða vitleysu og
b) maður þekkir ekki allar staðreyndir málsins né mun nokkurn tíma fá að sjá öll gögn.
Hvernig er hægt að leggja málið fyrir þjóðina þegar mikilvægustu málsgögn liggja læst inni í herbergi á Alþingi? Hvernig á maður að taka upplýsta ákvörðun án upplýsinga?

Best að taka óléttuna á þetta og inkjúbeita aðeins lengur...

Posted at 02:19 pm by agnesogeinar
Make a comment

Tuesday, June 23, 2009
Hún á ammæli í dag

Söngstjarnan systir mín fullorðnast á ótrúlegum hraða - er orðin 26 ára! Til hamingju með daginn elsku Erla perla : )

Posted at 12:20 pm by agnesogeinar
Comments (2)

Friday, June 19, 2009
Dánarfregnir

Gísli, Eiríkur, Helgi og Snæfríður eru dáin. Í gær tók ég eftir því að Svala og Svarthöfði voru alveg hætt að bera mat í hreiðrið. Þegar við svo mönnuðum okkur upp í að kíkja í hreiðrið í morgunn voru litlu greyin dáin. Hef ekki hugmynd um hvað gerðist - hvort ungarnir hafi veikst eða hvort Svala eða Svarthöfði eða bæði hafa sjálf lent í slysi...? Vona ekki.

Náttúran getur verið voða grimm stundum.

Posted at 04:12 pm by agnesogeinar
Comments (5)

Monday, June 15, 2009
Þeir eru tveggja daga í dag...

Merkilegt að eitthvað sem er svona ljótt geti verið svona fallegt : )

Posted at 03:41 pm by agnesogeinar
Comments (6)

Wednesday, June 10, 2009
Afmæliskveðjur

(Einar pennalati skoðar dagatalið sitt)

Í dag eiga bæði mamma og Eiríkur afmæli - til hamingju með það! Eins og stundum áður er pakkinn í pósti ;^)

Posted at 01:59 pm by agnesogeinar
Comments (8)

Thursday, June 04, 2009
Blogg og bankahrun

(Einar skrifar án titils)

Í dag skrifa ég án titils. Venjulega er ég Einar Pennalati, en þann titil finnst mér ég hafa unnið mér inn með miklum sóma. Það er nú hinsvegar svo að Eva Dagbjört bloggaði um daginn og sló mig gersamlega út. Það liðu hvorki meira né minna en 6 mánuðir milli blogga - árangur sem ég get bara látið mig dreyma um!

Í dag er ég semsagt bara Einar, ekki Einar Pennalati. Titlinum fylgir auðvitað farandgripur, gylltur penni, sem ég sé á öllu að ég mun neyðast til að afhenda Evu ... við tækifæri.

Svona til þess að bæta kjöti á beinin, og hætta að stríða Evu, þá ætla ég líka að benda ykkur, lesendum góðum á þessa grein eftir Robert Wade, prófesor við London School of Echonomics og Íslandsvin, eða í það minnsta áhugamann um Ísland. Þetta er mjög áhugaverð lesning um aðdraganda hrunsins, svona fyrir þau ykkar sem eruð ekki komin með upp í kok af því! Svo er víst best að benda á að ég rakst á greinina hjá Agli Helgasyni (hér).

Posted at 05:24 pm by agnesogeinar
Comments (7)

Sunday, May 31, 2009
Hreiðurgerð...

...fer fram út um allt á þessu heimili núna. Fyrir viku ákvað svartþrastapar að setjast að undir myntunni hennar Evu úti á svölum og - einn, tveir, þrír - allt í einu var komið hreiður og svo tvö egg. Hingað til gengur sambúðin vel og þeim virðist alveg sama þó ég vökvi myntuna daglega.

Í gær var svo líka dagurinn sem allt gerðist. Hingað upp á fjórðu hæð svitnuðust tveir fílefldir karlmenn með barnavagn og rúmið skilaði sér í hús seinni partinn. Þá vantar held ég bara bleyjur - og Agnarögn : )

Posted at 09:30 am by agnesogeinar
Comments (14)

Monday, May 25, 2009
My Playboys!

(Aulahúmorshorn Einars pennalata)

Já, aulinn í mér hló að þessari fyrirsögn: Playboy til sölu, Virgin hugsanlegur kaupandi - ég meina kommonn: Virgin kaupir Playboy! Hversu viðeigandi er það?

Posted at 10:32 am by agnesogeinar
Comments (3)

Next Page