Þetta er bloggið þeirra Agnesar og Einars pennalata hvar og hvenær sem þau eru.


   



<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed

Blogdrive



Sunday, May 24, 2009
Afmæliskveðjur

Guðjón Bragi besti-vinur-síðan-ég-man-eftir-mér á afmæli í dag og er nú formlega kominn á fertugsaldurinn! Til hamingju með það!

Posted at 09:13 am by agnesogeinar
Comments (1)

Thursday, May 14, 2009
It's hip to be square

(Einar pennalati er kassalaga)

Það er svo sem ekki í frásögu færandi þegar maður labbar á pósthúsið og sendir pakka. Venjulega er þetta ómerkilegur atburður, í raun jafn ómerkilegur eins og það er skemmtilegt að fá pakka. En þetta skifti var merkilegt. Pakkinn sjálfur var nefnilega merkilegur, á að giska 50 cm langur sívalningur, álíka breiður og hálfs líters kókflaska.

Ég skellti semsagt þessum skemmtilega pakka á afgreiðsluborðið fyrir framan mig og uppskar ... skemmtilegt augnaráð. Það er nefnilega þannig að það er dýrt að senda sívalningslaga pakka. Það kostar 9 evrur að senda pakka sem er eins og sívalningur í laginu, en 3 ef hann er eins og mjólkurferna í laginu, þ.e.a.s. eckig, square.

Ég hálfpartins hrökklaðist aftur út af pósthúsinu og hafði það sterklega á tilfinningunni að afgreiðslukonan sæi það á mér að ég þyrfti að spara þessar 6 evrur. Pakkinn er kominn aftur heim og bíður þess að við klárum tvær mjólkurfernur svo það sé hægt að pakka honum aftur inn.


En talandi um að vera square (í þeirri merkingu sem Huey Lewis and the News lögðu í orðið árið 1986) þá fórum við stórfjölskyldan (ég, Agnes og Eva) á nýju StarTrek myndina á þriðjudaginn var. Myndin heitir ... uh ... Star Trek og kemur eins og ferskur blær inn í staðnaðann StarTrek heiminn. Skemmtileg, fyndin og næstum því spennandi á köflum - í einu orði sagt besta StarTrek myndin sem ég hef séð. Skilst að meira að segja ekki-trekkarar hafi gaman af henni ;)

Posted at 03:16 pm by agnesogeinar
Comments (5)

Wednesday, May 06, 2009
6 maí

Rétt rúmir tveir mánuðir eftir. Maður er nú farin að hlakka dáltið til að hitta litla dýrið - aðallega svo hægt sé að segja því að það er ljótt að sparka í mömmu!

Annars framdi ég nær-skilnaðarsök um daginn. Ég ruglaði saman Rura Penthe og Hoth í samtali við übernördinn á heimilinu. Vissulega grafalvarlegt, en komm onn, báðir staðirnir eru plánetur sem eru þaktar í ís, eru lengst úti við rassgat alheimsins og EKKI TIL Í ALVÖRUNNI!

Posted at 02:44 pm by agnesogeinar
Comments (5)

Tuesday, April 28, 2009
Öll vitleysan

Þess er skemmst að minnast að hitapottaliði í sundhöllinni hrósaði Erlu systur fyrir það hvað hún talaði nú ágæta íslensku. Já, það er mesta furða, ekki eins og hún sé fædd á Lansanum og uppalin á Egilsstöðum. Hér eru iðulega gengið út frá því að við Einar séum bornir og barnfæddir Þjóðverjar á meðan samstarfsmaður Einars, sem getur rakið ættir sínar aftur til Habsburgara (eða þannig sko), er gjarnan talinn tyrkneskur að uppruna. Ætli það hafi eitthvað með það að gera að við erum ljós og bláeyg á meðan hann er sællega sólbrúnn og með súkkulaðiaugu?

Útlendingslegir í útliti? Hvernig er það?
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/04/28/thrir_menn_eftirlystir/

Posted at 11:57 am by agnesogeinar
Comments (2)

Saturday, April 25, 2009
Áróður á kjördag

(Einar pennalati skrifar)

Ég ætlaði nú eiginlega að skrifa langt og mikið kosninga- og áróðursblogg fyrir nokkru síðan ... en einhvernvegin ekki haft mig í það. Þannig að hérna er "the good parts version"

  • Ekki kjósa Sjálfstæðisflokkinn: Spilling og einkavinavæðing galor!
  • Dittó með Framsókn
  • Ef þið haldið að ESB sé eina von Íslands þá kjósið þið Samfylkinguna
  • Vinstri-græn virðast hafa verið minnst spillti flokkurinn - kúdós með það
  • Ef þú treystir ekki fjórflokknum (og afhverju ætti maður svo sem að gera það) þá er best að kjósa Borgarahreyfinguna - kúdós fyrir að reyna að ráðast á valdakerfið

    Annars er ég að hugsa um að leggjast í þunglyndi yfir því að:

  • Sjálfstæðisflokkur fær meira en 20% atkvæða!
  • Framsókn verður yfir 5% múrnum!
  • Íslendingar get ekki rætt ESB málið án þess að fá flog!

    ... eða bara fara út í góða verðið og velta fyrir mér hvort ég eigi að sækja um Þýskan ríkisborgararétt ;)
  • Posted at 09:40 am by agnesogeinar
    Comments (4)

    Friday, April 24, 2009
    Heillakonan

    Harpa á afmæli í dag. Til hamingju með það elsku kjellingin!

    Posted at 03:00 pm by agnesogeinar
    Comments (1)

    Tuesday, April 21, 2009
    Ég hélt...

    ...að tilgangurinn hefði einmitt verið að ræða viðhorf eins og þau sem Íransforseti lýsti. Ekki stinga af frá þeirri staðreynd að slík viðhorf eru viðruð af fólki í áhrifastöðum á hverjum degi.

    Svín. Mig dreymir linnulaust svín þessa dagana, nótt eftir nótt. Stór, lítil, bleik, marglit, inni á stalli og úti í náttúrunni. Svín. Hvað í???

    Posted at 06:51 am by agnesogeinar
    Comments (4)

    Thursday, April 16, 2009
    sami og síðast

    Mig skal ekki undra að Stígamót og Kvennaathvarfið geri athugasemdir við þessa auglýsingu. Heisús kristos!



    Þrátt fyrir einhverja málfræðilega tilburði til að þykjast miða auglýsinguna á bæði kyn ("einhverjum/einhverri") vísar myndmálið augljóslega til kvenna. Þarna eru meira að segja tvær myndir af konum, engin af karli. Og ætli það sé tilviljun að aðal myndin vísi í amerísku baby-boom menninguna frá 1950-60? Þegar konum var meira og minna smalað af vinnumarkaði og inn á heimilin til undaneldis? Eða er undirmeðvitundin kannski að banka upp á hjá hönnuðum auglýsingarinnar og segja þeim að þarna beri þeir á borð fullkomlega úreltar og siðlausar - já, siðlausar! - hugmyndir um ábyrgð þeirra sem verða fyrir ofbeldi?

    Það er aldrei þér að kenna ef þú verður fyrir ofbeldi. Hvort sem þú ert kona eða karl eða kynjavera. Ekki drekka frá þér ráð og rænu - það er heimskulegt á svo marga vegu - en ofbeldi er alltaf, alltaf á ábyrgð gerandans. Lýðheilsustöð ætti að sjá sóma sinn í að standa líka vörð um andlega heilsu fórnarlamba ofbeldis í stað þess að erfiða svo mörgum bata með svona vitleysu.

    Posted at 07:14 am by agnesogeinar
    Comments (7)

    Monday, April 06, 2009
    grrrr... arggg...

    Jafnrétti kynjanna er auðvitað ekki í höfn - kynbundinn launamunur er ágætt dæmi - en nú erum við að upplifa í fyrsta skipti held ég að það halli á kallinn.

    Mæðravernd er mjög góð hér og mikið gert fyrir verðandi mæður, en faðirinn vill því miður gleymast svolítið. Í þessi skipti sem við Agnarögn höfum farið í skoðun hefur Einar alltaf verið eini faðirinn á biðstofunni og stundum hefur þurft að grafa fram aukastól handa honum í snarhasti - greinilega ekki mjög algengt að pabbinn taki þátt. Svo fæ ég ókeypis námskeið í fæðingarundirbúningi, alveg 16 tíma, en ef "partner" vill koma með kostar það litlar 95 evrur aukalega. Við getum sem betur fer leyft okkur þetta, en fyrir fátækari fjölskyldur þýðir þetta bara að fæðingin er alfarið á ábyrgð móður og faðirinn eða hitt foreldrið er ekki með í lúppunni. Skilaboðin eru skýr - konan sér um börnin, karlinn er afskiptur. Það er eiginlega erfitt að segja hvort kynið hallar meira á þarna, því það er hætt við að mamman sitji uppi með ummönnunina þegar svona er lagt af stað og föðurnum finnist hann ekkert velkominn í lífi nýju manneskjunnar. Jafnrétti kynjanna, sem er lélegast hjá fátækari fjölskyldum fyrir, er því ekki líklegt til að aukast við þetta.

    Hitt er ungbarnasundið. Ég nýt þessi ekki beint að fara í sund - allt of blautt - á meðan Einari finnst það mesta fútt. Ungbarnasund er hins vegar sniðug hugmynd. Í auglýsingum fyrir slíkt var hins vegar bara talað um Mutter und Kind og hvergi minnst á föður. Þannig að við spurðum. "Ja, já, neeii ... veistu, ég bara ... þyrfti að skoða þetta ... held ekki að ... hefur bara ekki komið upp... *tafs, jappl, jaml og fuður*. Sennilega verður Einari gert að koma for-sturtaður og skipta um föt á klósettinu.

    En það er sól og sumar og von á vorfuglinum (Erlu perlu) í páskaheimsókn. Leikstjórnarverkefnið hans Unnars Geirs var að komast á Edinborgarhátíðina og Ragnheiður tengdó var að senda okkur alveg hreint ótrúlega sætt prjónadress á Agnarögn. Hver nennir að ergja sig?

    Posted at 01:30 pm by agnesogeinar
    Comments (4)

    Thursday, March 26, 2009
    Sækadelískt sýrukántrí

    (Einar pennalati deilir gleðinni með sér)

    Í gær slysaðist ég inn á bloggsíðuna hjá Dr. Gunna, sem er svosem varla í frásögu færandi nema vegna þess að þar er að finna hina tímalausu snilld Just Dropped In (To See What Condition My Condition Was In). Síðan ég smellti á þennan hlekk hefur lagið verið á repeat í hausnum á mér og ég er að fíla þetta "sækadelíska sýrukántrí" í druslur. Ef mig hefði bara dreymt atriðið úr The Big Lebowski í nótt væri ég í skýjunum!

    Í tilefni þess stanslausa partís sem er í hausnum á mér byð ég lesendum mínum að smella hér og syngja með mér:

    (yeah, yeah, oh-yeah, what condition my condition was in)

    I woke up this mornin with the sundown shinin in
    I found my mind in a brown paper bag within
    I tripped on a cloud and fell-a eight miles high
    I tore my mind on a jagged sky
    I just dropped in to see what condition my condition was in

    (yeah, yeah, oh-yeah, what condition my condition was in)

    I pushed my soul in a deep dark hole and then I followed it in
    I watched myself crawlin out as I was a-crawlin in
    I got up so tight I couldnt unwind
    I saw so much I broke my mind
    I just dropped in to see what condition my condition was in

    (yeah, yeah, oh-yeah, what condition my condition was in)

    Someone painted april fool in big black letters on a dead end sign
    I had my foot on the gas as I left the road and blew out my mind
    Eight miles outta memphis and I got no spare
    Eight miles straight up downtown somewhere
    I just dropped in to see what condition my condition was in

    I said I just dropped in to see what condition my condition was in
    Yeah yeah oh-yeah


    Posted at 11:19 am by agnesogeinar
    Comments (2)

    Previous Page

    Next Page