|
Í gær var svo líka dagurinn sem allt gerðist. Hingað upp á fjórðu hæð svitnuðust tveir fílefldir karlmenn með barnavagn og rúmið skilaði sér í hús seinni partinn. Þá vantar held ég bara bleyjur - og Agnarögn : )
|
| AUGASteinar June 17, 2009 12:28 AM PDT Æ, hvað er gaman að sjá þig í þessu hlutverki frændi "litli". Ætla ekki að blanda mér í bleiuumræður enda með eindæmum mikill umhverfissóði í þeim efnum. Öfunda ykkur ekkert af hreiðrinu á svölunum og þaðan af síður af innihaldi þess. Fer hins vegar bráðum að telja niður dagana þar til Agnarögn lætur sjá sig. Gangi ykkur vel elskurnar. Kv. Gyða | ||
| Steinrún June 16, 2009 01:58 AM PDT Ikea: Love it! Bumgenius: love it!! Gaman að hreiðurgerðinni hjá ykkur á ýmsum stigum. Bíð fram alla mína aðstoð við taubleyju-ráðleggingar ef vill...myndi samt mæla með pappa-bleyjum fyrstu 1-2 mánuðina. Get ekki beðið eftir Agnarögn frekar en sumir! | ||
| Elín Björk June 14, 2009 11:22 AM PDT Gasbleyjurnar eru bara þessar gömlu góðu - bómullarklútarnir sem maður notar bleyjubuxur yfir - ef þið ákveðið að kaupa bleyjubuxur til að nota yfir bleyjur (fitted t.d.) þá mælir Trausti eindregið með Thristies :) | ||
| Linda og Palmar Help June 12, 2009 05:33 PM PDT Sætt!! | ||
| mamma R June 6, 2009 06:28 PM PDT Gasbleiur já. Þið Einar voruð bæði með gasbleiur á ykkar rassi. Eva líka og Eiríkur á daginn. Svaf með pappableiur eins og þær voru kallaðar þá á nóttunni. | ||
| Agnes June 5, 2009 09:08 AM PDT He he! Nei, fullkomlega eðlilegt! Við keyptum á endanum bleyjur frá bumgenius.com. Þetta er voða flott hönnun og bleyjan á að virka frá 0-3 ára. En gasbleyjur??? hvað er það? | ||
| Elín Björk June 5, 2009 12:37 AM PDT Frábært - gott efni er einmitt rándýrt! Við erum mikið til komin aftur á byrjunarreit á þessu heimili :) Gasbleyjur og cover! Hvernig bleyjur urðu svo fyrir valinu?? (ég veit hvað ég er klikkuð á því að hafa svona mikinn áhuga á þessu!!) | ||
| Einar June 4, 2009 03:49 PM PDT guggiZH og Elín Björk: Takk! Ég stefni á næsta IKEA-bækling :) ... og já, bleyjurnar verða taubleyjur - en ekki heimasaumaðar. Það kom nefnilega í ljós að það kostar næstum jafn mikið að kaupa efni í evrum eins og það kostar að kaupa bleyjur í pundum og láta senda þær yfir sundið! | ||
| Elín Björk June 2, 2009 10:15 PM PDT Frábærar myndir - verða bleyjurnar ekki taubleyjur ? :) | ||
| Agnes June 2, 2009 08:10 AM PDT R: "It's the circle of life ... la la lalala" :) P: Man það. Svo eru komin þrjú egg núna og hún er byrjuð að liggja á. | ||
| guggiZH June 1, 2009 12:26 PM PDT einar: góður IKEA svipur ;) | ||
| mamma R May 31, 2009 09:15 PM PDT Einu sinni, og þó fyrir svo stuttu, horfðum við Óli hugfangin á frumburðinn í gegnum rimla á barnarúmi. Ótrúlegt að það hið sama „barn“ verði bráðum í sömu stöðu og við :) Til hamingju með öll hreiðrin. mamma R | ||
| Mamma Helga May 31, 2009 09:02 PM PDT rooooooosasætt | ||
| Philip Vogler May 31, 2009 07:01 PM PDT Svakaflott hreiður, hvorttveggja! Það er virkilega gaman að sjá hvað svartþrestir hafa líka fínt hreiður. Munið þið kannski eftir því að það var ég sem fræddi Kristján og Evu Dagbjörtu í kaffiboði hjá þeim um það hvaða svartir fuglir væru að róta í garðinum hjá þeim í Smáíbúðahverfinu og einnig um það að það væru þeir sem hefðu verið að syngja svo óhemju fallega þá og dagana á undan? Vonandi sjá þau enn stundum svartþröst en ég hef ekki séð neinn á Héraði síðan þetta átti sér stað. Mig gleður að þið sjáið þá oft! - Philip pabbi | ||
| Leave a Comment: |