|
Í dag skrifa ég án titils. Venjulega er ég Einar Pennalati, en þann titil finnst mér ég hafa unnið mér inn með miklum sóma. Það er nú hinsvegar svo að Eva Dagbjört bloggaði um daginn og sló mig gersamlega út. Það liðu hvorki meira né minna en 6 mánuðir milli blogga - árangur sem ég get bara látið mig dreyma um! Í dag er ég semsagt bara Einar, ekki Einar Pennalati. Titlinum fylgir auðvitað farandgripur, gylltur penni, sem ég sé á öllu að ég mun neyðast til að afhenda Evu ... við tækifæri. Svona til þess að bæta kjöti á beinin, og hætta að stríða Evu, þá ætla ég líka að benda ykkur, lesendum góðum á þessa grein eftir Robert Wade, prófesor við London School of Echonomics og Íslandsvin, eða í það minnsta áhugamann um Ísland. Þetta er mjög áhugaverð lesning um aðdraganda hrunsins, svona fyrir þau ykkar sem eruð ekki komin með upp í kok af því! Svo er víst best að benda á að ég rakst á greinina hjá Agli Helgasyni (hér). |
| Name June 14, 2009 04:24 PM PDT Hah! Ég er búin að blogga aftur! AFTUR! | ||
| hme June 8, 2009 12:29 PM PDT Hæ hæ og halló elsku fallega fólk!!! Hérna koma knús á rafrænu formi handa ykkur og bumbubúanum xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx | ||
| Einar June 8, 2009 09:55 AM PDT Þá segi ég bara góða skemmtun í garðinum og góða skemmtun í skálanesi! Svo verða nú einhver ráð með að ná í afmælisbörnin - þó það gerist kanski ekki akkúrat á réttum degi. | ||
| mamma R June 7, 2009 11:59 PM PDT Já takk. Ég á bara eftir að gefa mér tíma í greinarlestur. Í góðviðrinu þessa dagana er maður í garðinum þegar maður er ekki í skólanum, sem fer senn að ljúka sem betur fer, enda komið sumar og nemendur og kennarar eiga að mínu áliti ekkert að gera inní skólum á þessum árstíma. Þetta er orðið spurning um barnapössun. Ég verð til dæmis að vinna á afmælisdaginn minn fram að hádegi og hef ekki verið í vinnu í skólanum á þessum tíma fram að þessu. Það þýðir sem sagt ekki að hringja í mig á afmælisdaginn minn því eftir vinnu fer stór og stæðilegur hópur starfsfólks skólans, makar og börn í gönguferð í Skálanes klukkan 17 og guð má vita hvenær við komum heim. Gaman væri að heyra í ykkur daginn eftir. Því miður verður EÓ að vinna þennan dag og kemst ekki með okkur svo hann verður heima fram til klukkan 16. Knús og snús og prús mamma R | ||
| Einar June 6, 2009 12:12 PM PDT Það er gott að þið funduð bæði eitthvað skemmtilegt að lesa! | ||
| Philip Vogler June 5, 2009 10:30 AM PDT Og ég þakka fyrir ábendinguna um greinina. Hún var að vísu svo löng að ég las aðeins búta. Þó hafði ég ábyggilega gott af! - Philip pabbi | ||
| mamma R June 4, 2009 08:42 PM PDT Takk fyrir að benda mér á Evublogg. Ég er alveg hætt að athuga það :) kv. mamma | ||
| Leave a Comment: |