Entry: Dánarfregnir Friday, June 19, 2009



Gísli, Eiríkur, Helgi og Snæfríður eru dáin. Í gær tók ég eftir því að Svala og Svarthöfði voru alveg hætt að bera mat í hreiðrið. Þegar við svo mönnuðum okkur upp í að kíkja í hreiðrið í morgunn voru litlu greyin dáin. Hef ekki hugmynd um hvað gerðist - hvort ungarnir hafi veikst eða hvort Svala eða Svarthöfði eða bæði hafa sjálf lent í slysi...? Vona ekki.

Náttúran getur verið voða grimm stundum.

   5 comments

Linda
June 26, 2009   07:53 PM PDT
 
Sorglegt....en mynduði ekki taka gleði ykkar á ný ef ég myndi senda ykkur hnoðarnn úr garðinum okkar. Passar örugglega alveg í hreiðrið.

Puss och kram frá okkur hér sem bíðum auðvitað spennt eftir komu Agnaragnar!!!
Einar
June 24, 2009   07:20 AM PDT
 
Við erum búin að velta þessu svolítið fyrir okkur og besta skýringin sem ég hef heyrt er að þeir hafi einfaldlega veikst eitthvað. Svala og Svarthöfði virtust allavega vera að sinna þeim vel. Og já, það er hálf tómlegt úti á svölum núna :( - en c'est la vie!
Name
June 23, 2009   03:42 PM PDT
 
Æ - ég er eiginlega bara með tárin í augunum...... þó ófríðir væru þá vitrust þeir yndislegir samleigendur.
mamma R
June 22, 2009   11:56 PM PDT
 
Skrítið !! það væri gaman að heyra frá fuglafræðingi hvort svona lagað sé algengt eða ekki og hvað hafi hugsanlega getað gerst.
knús mamma R
Philip Vogler
June 20, 2009   07:43 AM PDT
 
Við Helga heyrðum þetta auðvitað fyrst í Skype. Það eru sorglegar fréttir hvernig sem þær berast. Kannski eru Svala og Svarthöfði að byggja núna annað hreiður. Þið getið lifið í voninni um það en þá er synd að þig getið varla greint þau frá öðrum svartþröstum.
- Philip pabbi

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments