Entry: Nýr kafli Friday, July 03, 2009



Nú er um 7 mánaða frí framundan - þ.e. frí frá vinnu. Furðuleg tilhugsun! Hvenær var maður síðast í svona löngu fríi frá vinnu og skóla? 5 ára?

Annars er ég búin að vera að hugsa um Icesave. Ég veit ekki alveg hvernig maður á að taka afstöðu til þessa máls þegar:
a) Hvert sérfræði-/lögfræðiálitið á fætur öðru hrekur hið fyrra sem bölvaða vitleysu og
b) maður þekkir ekki allar staðreyndir málsins né mun nokkurn tíma fá að sjá öll gögn.
Hvernig er hægt að leggja málið fyrir þjóðina þegar mikilvægustu málsgögn liggja læst inni í herbergi á Alþingi? Hvernig á maður að taka upplýsta ákvörðun án upplýsinga?

Best að taka óléttuna á þetta og inkjúbeita aðeins lengur...

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments